Villinorn 6 - Afturkoman
Lene Kaaberbøl
Hver einasta villinorn í hringnum verður að geta spornað við afturkomunni. Það má alls ekki láta undan, hvorki fortölum né valdi. Einhver verður að fylgja henni síðasta spölinn inn í dauðraríkið. Annars fer hún ekki yfir.
Bestla Blóðkind er snúin aftur til lífsins og ætlar að gera allt sem í hennar valdi stendur til að halda lífi, þótt hún þurfi að éta hverju einustu veru á jörðinni til þess. Klara og nornahringurinn hennar eru þau einu sem geta stoppað Blóðkindina en það krefst fórnar.
Afturkoman er sjötta og síðasta bókin í danska bókaflokknum Villinorn, eftir verðlaunahöfundinn Lene Kaaberbøl. Þar segir frá Klöru og baráttu hennar við ill öfl í villtri náttúrunni.
Villinornarbækurnar hafa komið út á 17 tungumálum.
Jón St. Kristjánsson þýddi.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Villinorn 6 - Afturkoman