Villistrákarnir

William S. Burroughs

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK

Villistrákarnir

Villistrákunum eftir William Burroughs hefur verið lýst sem martraðakenndu meistaraverki, hrífandi og ögrandi í senn.

Um bókina

Í þessari frægu bók bandaríska rithöfundarins Williams S. Burroughs segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur. Þeir brjóta allar reglur samfélagsins í sama mund og hrun vestrænnar siðmenningar vofir yfir.

Með brotakenndum stíl sínum leikur Burroughs sér með tíma og rúm og dregur lesandann inn í óreiðukennda veröld þar sem siðferði, vald og mannlegt eðli eru stöðugt á reiki. Hefðbundin mörk leysast upp þar sem hold, langanir, frelsi, tækni og ofbeldi fléttast saman í trylltri sýn á fallandi heim.

„Hvað étur peningavélin? Hún étur æsku, frjálsræði, lífmagn, fegurð, og umfram allt, étur hún sköpunarmátt. Hún étur gæði og skítur magni.“ – William Burroughs

Nánari upplýsingar

  • Tungumál: Íslenska
  • Flokkur: Þýdd skáldsaga
  • Höfundur: William S. Burroughs
  • Þýðandi: Örn Karlsson

Ólafur Páll Sigurðsson ritaði eftirmála.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Villistrákarnir

Villistrákarnir

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK