Vítisfnykur
3,999 ISK
Höfundur Mons Kallentoft
Þessi vara er ekki fáanleg eins og er
Malin Fors hefur yfirgefið Linköping og sest að í Bangkok í Tælandi þar sem hún gegnir tímabundnu starfi á vegum sænsku lögreglunnar. Drykkja hennar hafði keyrt um þverbak vegna óreiðu í einkalífinu og máls sem henni tókst ekki að leysa.
Einsemdin þjakar hana og freistingar eru á hverju götuhorni. En eins og jafnan finnur hún sálarró í vinnunni. Sænsk kona er myrt með hrottafengnum hætti í Bangkok. Hver er hún? Hvert er samband hennar við Tælendinginn sem virðist vera næsta fórnarlamb? Tengjast morðin ef til vill atburðum í fortíðinni?
Mons Kallentoft er einn af þekktustu rithöfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögregluforingja í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda víða um lönd. Vítisfnykur er tíunda bókin um Malin Fors en hinar níu Sumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóð, Vorlík, Fimmta árstíðin, Englar vatnsins, Sálir vindsins, Moldrok og Brennuvargar hafa selst í milljónum eintaka og verið þýddar á nær 30 tungumál.