Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Yfir höfin

3,990 ISK

Höfundur Isabel Allende

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Þegar fasistar ná völdum á Spáni í lok borgarastyrjaldarinnar árið 1939 neyðast þúsundir til að flýja eftir háskalegum leiðum til Frakklands. Meðal þeirra eru ungi herlæknirinn Váctor og Roser, barnshafandi ekkja bróður hans. Til þess að komast af neyðast þau til að ganga í hjónaband sem hvorugt þeirra óskar sér.

Örlögin leiða þau til Chile með skipi sem skáldið Pablo Neruda hefur leigt til bjargar flóttafólki og saman tekst þessum útlögum að skjóta rótum í framandi meginlandi á meðan styrjöld geisar í Evrópu. En blikur eru einnig á lofti í afturhaldssömu og stéttskiptu samfélaginu í Chile.

Yfir höfin er söguleg skáldsaga sem spannar nokkrar kynslóðir og tvö meginlönd. Þetta er saga um ástir, fjölskyldur, stríð og leitina að samastað í viðsjálli veröld.

Isabel Allende er fyrir löngu orðin einn ástsælasti rithöfundur heims, enda er hún einstök sagnakona. Aðdáendur hennar munu ekki verða sviknir af þessari margbrotnu frásögn sem streymir fram eins og litríkt og ólgandi stórfljót.

Sigrún Á. Eiríksdóttir þýddi.