Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Aukaspyrna á Akureyri

2,990 ISK

Höfundur Gunnar Helgason

Akureyri. Höfuðstaður Norðurlands. Stærsta borgin utan Reykjavíkursvæðisins. Vetraríþróttamiðstöð Íslands. Fótboltaparadís. Veðravíti. Fram undan var fjögurra daga óopinbert íslandsmót fimmta flokks drengja í fótbolta. N1-mótið. Enn eitt mótið. Við vorum mættir. Besta lið á Íslandi. Þróttur.

Aukaspyrna á Akureyri er æsispennandi saga sem stelpur og strákar um allt land hafa beðið óþreyjufull eftir síðan þau lögðu frá sér Víti í Vestmannaeyjum. Hér halda Jón Jónsson og vinir hans áfram að berjast um sigur, á fótboltavellinum og utan hans. Eins og alltaf gengur sumt vel og annað ekki, og það eitt er víst að maður veit aldrei hvert boltinn rúllar!

Víti í Vestmannaeyjum hitti beint í mark hjá lesendum og óhætt er að fullyrða að Aukaspyrnan geri það líka!