Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Gælur fælur og þvælur

3,990 ISK

Höfundur Þórarinn Eldjárn, Sigrún Eldjárn

Langar þig að lesa um höfuðfatahöfuðpaur, kaffikellingu og ólíkindatól? Þá er þetta bók handa þér!

Barnaljóðabækur Þórarins og Sigrúnar Eldjárn hafa glatt íslenska lesendur í meira en þrjá áratugi og margir eiga sitt eftirlætiskvæði úr þessum ríkulega vísnubrunni.

Í Gælur, fælur og þvælur yrkir Þórarinn sextán skemmtileg kvæði undir ýmsum rímnaháttum en Sigrún skreytir þau með fjörlegum olíumálverkum.