Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Hamingjustundir Dinnu

2,090 ISK

Höfundur Rose Lagercrantz og Eva Eriksson

Dinna heldur að hún sé kannski hamingjusamasta manneskja í heimi. Sérstaklega eftir að hún byrjar í skólanum.
Allt gengur svo vel – og verður bara betra og betra.
Hún eignast vinkonu!
En síðan gerist svolítið sem hún átti ekki von á. Og svo gerist enn fleira ...

„Hamingjustundir Dinnu“ er fyrsta bókin í sænska bókaflokknum um Dinnu og sú fyrsta sem kemur út á íslensku. Þær hafa verið þýddar á mörg tungumál og unnið til fjölmargra bókmenntaverðlauna.

Myndskreytt bók fyrir byrjendur í lestri.