Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Skógurinn

4,990 ISK

Höfundur Hildur Knútsdóttir

Allt líf Kríu hefur litast af hvarfi Gerðu ömmu hennar sem hún varð vitni að á unglingsaldri. Því hugsar hún sig ekki tvisvar um þegar sömu örlög bíða dótturdóttur hennar sjötíu og níu árum síðar og Kría fórnar sér í hennar stað. Þá sér hún loksins hvað leynist handan við dularfulla skápinn í risherberginu við Skólastræti og fær svör við spurningum sem hafa ásótt hana áratugum saman.

Skógurinn er lokabindi rómaðs þríleiks Hildar Knútsdóttur þar sem saman fer spennandi saga og ævintýralegt hugmyndaflug. Báðar fyrri bækurnar, Ljónið og Nornin, voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlutu Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Fyrir þá fyrri hlaut Hildur einnig Barnabókaverðlaun Reykjavíkur.