Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Skrímslaleikur

3,990 ISK

Höfundur Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler, Rakel Helmsdal

Litla skrímslið og stóra skrímslið eru að bauka eitthvað saman í leyni. Þegar loðna skrímslinu er svo boðið til leiks finnur það hvergi vini sína! Hvaða óvættir hafa eiginlega lagt undir sig sviðið?

Skrímslaleikur er tíunda bókin um litla og stóra skrímslið. Níunda bókin, Skrímsli í vanda, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka og var tilnefnd til Barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs. Bækurnar um skrímslin hafa komið út á fjölda tungumála og hvarvetna vakið hrifningu.