Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Hetja

4,990 ISK

Höfundur Björk Jakobsdóttir

Hetja er æsispennandi saga um vináttu stúlku og hryssu og baráttu þeirra fyrir að finna hvor aðra aftur.

Hetja og Björg eru bestu vinkonur og vilja helst alltaf vera saman. Þess vegna verður Hetja skelfingu lostin þegar svarta hyldýpið flytur hana á brott – og Björg gráti nær þegar hún finnur vinkonu sína hvergi í haganum.

Elsku amma Dúfa og allar

góðar vættir. Ekki láta Hetju

deyja. Ég bið eins heitt og

ég get og endurtek í sífellu.

Ekki láta Hetju deyja …

ekki láta Hetju deyja …

Björk Jakobsdóttir hefur skrifað og leikstýrt vinsælum leiksýningum fyrir alla aldurshópa. Á barnsaldri kynntist hún hrossum, og næmi hennar fyrir tilfinningum þeirra og tjáningu gerir söguna um Hetju bæði sterka og heillandi. Sagan endurspeglast fallega í áhrifamiklum myndum Freydísar Kristjánsdóttur.