Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Þín eigin saga Búkolla

2,690 ISK

Höfundur Ævar Þór Benediktsson

Þín eigin saga – Búkolla fjallar um snjalla kú, beljandi fljót, óðar skessur, brjálað naut, logandi bál, stærðarinnar bor – og ÞIG.

ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST!

Mundu bara að ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur – það eru meira en tíu mismunandi sögulok!

Bækur Ævars Þórs Benediktssonar þar sem lesandinn ræður ferðinni hafa notið gríðarlegra vinsælda á undanförnum árum. Hér spinnur hann þráð úr bók sinni Þín eigin þjóðsaga í stuttum köflum og aðgengilegum texta sem hentar byrjendum í lestri.

Evana Kisa myndskreytir.