Grænkerakrásir Guðrúnar Sóleyjar
3,990 ISK
Höfundur Guðrún Sóley Gestsdóttir
Vegan uppskriftir fyrir mannúðleg matargöt
Húrra fyrir þér, hvort sem þú ert vegan eða að hugleiða það, lest þessi orð og hugsar málið. Allt sem þarf er opinn hugur því þá er ímyndunaraflið eina takmörkunin í sælkeraævintýrinu sem er að hefjast.
Heill heimur opnaðist fyrir mér þegar ég varð vegan og ég trúði varla möguleikunum sem öll þessi hráefni bjóða upp á; kryddin, ferska grænmetið, baunirnar, ávextirnir, jurtirnar, hneturnar, fræin. Pastað! Pizzurnar! Hamborgararnir! Kökurnar, kruðeríið og sælgætið. Og sósurnar – maður lifandi, sósurnar!
Fallegu ljósmyndir bókarinnar tók Rut Sigurðardóttir.
Grænkerakrásir Guðrúnar Sóleyjar er fyrsta bók fjölmiðlakonunnar og sælkerans Guðrúnar Sóleyjar Gestsdóttur. Uppskriftir bókarinnar eru fjölbreyttar, girnilegar, saðsamar og vegan í gegn. Njótið vel!
Gerð: Innbundin
Síðufjöldi: 168