Elle Kennedy

Elle Kennedy er metsöluhöfundur á listum New York Times, USA Today og Wall Street Journal og hefur heillað lesendur um allan heim upp úr skónum. Hún hefur skrifað yfir fimmtíu bækur, þar á meðal hina geysivinsælu Off-Campus seríu sem hefur notið gríðarlegra vinsælda, en vinsældir seríunnar hafa aukist enn frekar eftir að bækurnar voru færðar yfir á sjónvarpsskjá.

Elle Kennedy ólst upp í úthverfi Toronto í Kanada og lauk BA-prófi í ensku frá York University. Frá unga aldri vissi Elle að hún vildi verða rithöfundur og byrjaði markvisst að vinna að þeim draumi þegar hún var á unglingsaldri.

Skoða bækur eftir höfund

Sarah Adams

Sarah Adams er metsöluhöfundur á listum New York Times og USA Today og hefur heillað lesendur um allan heim, meðal annars með bókaseríunni When in Rome og tvíleiknum Los Angeles Sharks. Hún skrifar hlýjar ástarsögur fullar af húmor og djúpum tilfinningum.

Sarah býr í Nashville í Tennessee og setja rætur höfundar í suðurríkjunum sterkan svip á frásagnarstíl og persónusköpun í verkum hennar.

Skoða bækur eftir höfund