Torfkirkjur á Íslandi

Björn G. Björnsson

3,490 ISK
3,490 ISK

Upprunalegar torfkirkjur sem enn standa á Íslandi eru aðeins fimm og sú sjötta er sett saman úr viðum eldri kirkju. Þær eru með því merkasta í íslenskri byggingarlist: Víðimýrarkirkja í Skagafirði, Grafarkirkja á Höfðaströnd, Saurbæjarkirkja í Eyjafirði, Hofskirkja í Öræfum og Bænhúsið á Núpsstað auk Árbæjar- kirkju í Reykjavík. Allir þessir staðir, og allar þessar byggingar, eru hluti af íslenskum menningararfi og meðal þess besta og merkasta sem við eigum á þessu sviði.

Höfundur bókanna er Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, ritar formála.

Þetta eru handhægar bækur með ríkulegu myndefni og stuttum texta og í hverri bók er kort sem sýnir staðsetningu þess sem fjallað er um ásamt gagnlegum upplýsingum.

Bækurnar eru fáanlegar bæði á íslensku og ensku.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Torfkirkjur á Íslandi

Torfkirkjur á Íslandi

3,490 ISK
3,490 ISK