Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Esseyja / Island Fiction

8,690 ISK

Höfundur Þorgerður Ólafsdóttir

Esseyja er þverfaglegt ritverk eftir myndlistarkonuna Þorgerði Ólafsdóttur. Í þessari fallegu útgáfu er fléttað saman listaverkum, ferðasögum og textum sem fjalla um ólíkar hliðar á tilveru og sögu Surtseyjar. Lesendur fá að skyggnast inn í marglaga veröld Surtseyjar út frá sjónarhorni myndlistar og upplifun af náttúru, hugmyndum um fjarlægar eyjar og menningar- og náttúruminjar á mannöld.  

Sumarið 2021 hlaut Þorgerður rannsóknarleyfi til Surtseyjar og dvaldi þar í þrjá daga ásamt hópi vísindamanna. Í samspili við myndlistarverkin í bókinni eru esseyjur eftir fjórar fræðikonur og rannsakendur; Birnu Lárusdóttur, íslensku- og fornleifafræðing, Guðbjörgu R. Jóhannesdóttur, umhverfisheimspeking, Þóru Pétursdóttur, fornleifa-og minjafræðing og Becky Forsythe sýningastjóra.

Fyrir útgáfuna gefa einnig Þorgerður og Gunndís Ýr Finnbogadóttir myndlistarkona, lesendum innsýn í nýtt verk sem byggir á viðtölum við ólíka hópa Surtseyjarfara. Verkið er hluti af sýningu þeirra, Óstöðugu landi, sem opnar á næsta ári í Gerðarsafni og fjallar m.a. um reynslu fólks af landslagi Surtseyjar. 

Esseyja er vegleg, um tvöhundruð blaðsíður á lengd og er bæði með íslenskum og enskum texta. Hönnuður bókarinnar er Elín Edda Þorsteinsdóttir, grafískur hönnuður og myndskreytir. Esseyja er gefin út í samstarfi við rannsóknarverkefnið Relics of Nature sem Þorgerður og Þóra eru einnig þátttakendur í.