Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Forystufé og fólkið í landinu

7,990 ISK 4,490 ISK

Höfundur Salka - ÖFUNDUR Guðjón Ragnar Jónsson/Daníel Hansen

Það sem greinir forystufé frá öðrum kindum er að það býr yfir ólíku gáfnafari, velur bestu leiðir og sýnir mikinn dugnað og hörku. Sagt er að forystufé finni á sér þegar veðrabrigði eru yfirvofandi – og sjái jafnvel ýmislegt sem öðrum er hulið. Forystufé er einnig háfættara og töluvert léttara en aðrar kindur.
Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen, forstöðumaður Fræðaseturs um forystufé, hafa hér safnað saman sögunum um forystuféð og fundið til ýmsan fróðleik um þessar kindur sem hætta aldrei að koma á óvart með atferli sínu og gáfnafari - kindum sem ætíð hefur hvílt ákveðin dulúð yfir.