Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Fulltrúi þess besta í bandarískri menningu

7,990 ISK

Höfundur Haukur Ignvarsson

Haustið 1955 sótti bandaríski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn William Faulkner Íslendinga heim. Kalda stríðið var í algleymingi og íslenska þjóðin klofin í afstöðu sinni til herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Faulkner var eindreginn talsmaður stórveldisins í vestri en fangaði hugi og hjörtu Íslendinga þvert á flokkslínur, sósíalistar lýstu honum sem fulltrúa þess besta í bandarískri menningu. En hver var þessi Faulkner? Og hvernig stóð á vinsældum hans? Í bókinni er fjallað um landnám módernismans í íslenskum bókmenntum og bandarísku bylgjuna sem reið yfir bókmenntaheiminn á fjórða áratug 20. aldar. Brugðið er nýju og óvæntu ljósi á þátttöku íslenskra hægrimanna í alþjóðlegu menningarstarfi í kalda stríðinu Hér er á ferðinni nýstárleg rannsókn sem byggir á fjölbreyttum heimildum, þar á meðal gögnum af innlendum og erlendum skjalasöfnum. Bókin á erindi til alls áhugafólks um bókmenntir og sögu.Haukur Ingvarsson er doktor í bókmenntafræði og rithöfundur. Hann er höfundur bókarinnar Andlitsdrættir samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness. Árið 2018 hlaut Haukur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabók sína Vistarverur.