Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Rammvillt í reikningskúnstum

5,290 ISK

Höfundur Sabine Hossenfelder

Eru vísindin á villigötum? Hafa vísindamenn horfið frá hinni vísindalegu aðferð? Hafa þeir villst af leið fyrir fegurðar sakir? Sent frá sér ritgerðir sem bæta litlu við núverandi þekkingu?
Þýski eðlisfræðingurinn Sabine Hossen felder tekst á við slíkar grundvallarspurningar í þessari umtöluðu og umdeildu bók. Hún er einn vinsælasti vísindamiðlari heims og hafa myndskeið hennar á netinu verið skoðuð í tugi milljóna skipta. Í leit að svörum ræðir Hossenfelder við þekkta vísindamenn og Nóbelsverðlaunahafa í eldlínu fræðanna. Hossenf elder spyr meðal annars hvers vegna dýrustu vísindatilraunir sögunnar hafa skilað jafn litlum árangri og raun ber vitni. Mikið er undir, þar með talin tilgátan um safn óendanlega margra alheima sem saman eiga að mynda fjölheim.
Í þessari gagnmerku bók fá lesendur einstaka innsýn í deilur um undirstöður hinnar vÍsindalegu heimsmyndar samtímans. Mikið umbrotaskeið kann að vera fram undan.
Hinn heimsþekkti vísindamaður Lawrence Krauss skrifar sérstakan inngang fyrir íslensku útgáfuna.