Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Samræður um frið

3,990 ISK

Höfundur Daisaku Ikeda

Í þessu fallega ritgerðasafni fjallar japanski friðarfrömuðurinn Daisaku Ikeda um kynni sín af stórkostlegum einstaklingum sem risu upp í nafni friðar og mannréttinda þrátt fyrir eigin þjáningar og breyttu þannig gangi sögunnar.

Hann segir meðal annars frá fundum sínum við Rosa Parks, Nelson Mandela, Linus Pauling og fleiri sem höfðu áhrif á hann og hvöttu hann áfram í hans eigin friðarbaráttu.

Ikeda, sem ólst upp í seinni heimsstyrjöldinni í Japan og mátti þola hræðilegar hörmungar stríðsins, skrifar hér um styrk mannsandans, um venjulegt fólk sem staðið hefur upp gegn óréttlæti og illsku í nafni friðar, í nafni lífsins. Verk Ikeda hafa verið þýdd á fimmtíu tungumál og nú loks einnig á íslensku.