íldardiplómasían fjallar, eins og nafn bókarinnar bendir til, um hinar mörgu hliðar síldarinnar, allt frá þætti hennar í menningu þjóða yfir í dýrindis síldarrétti, með viðkomu á ótal stöðum, meðal annars hjá þremur íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, sem stunda síldveiðar. Þau eru: Síldarvinnslan, Brim og Skinney-Þinganes.
Síldardiplómasía
Ted Karlberg og Håkan Juholt
8,990 ISK
8,990 ISK
0 ISK
/
Höfundar SÍLDARDIPLÓMASÍU eru tveir Svíar, þeir Ted Karlberg og Håkan Juholt — sem kynntust fyrst á höfuðstað síldarinnar, Siglufirði. Ted er sannkallaður meistarakokkur þegar kemur að síldarréttum og hefur hróður hans fyrir fjölbreytta og framandi framreiðslu á silfri hafsins borist víða. Håkan er diplómati og fyrrum sendiherra Svíþjóðar á Íslandi og hefur þar og annars staðar hampað síldinni hvenær sem tækifæri gefst til, enda fær hún „fólk til að tala saman,“ svo að notuð séu hans eigin orð.
SÍLDARDIPLÓMASÍA er gefin út í samvinnu Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði og Bókaútgáfunnar Hóla. Mikið af sögulegum og glæsilegum myndum prýðir bókina.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Síldardiplómasía
8,990 ISK
8,990 ISK
0 ISK
/