Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
UFO 101
8,690 ISK
Höfundur Gunnar Dan
Við erum ekki ein!
Jörðina heimsækja reglulega gestir utan úr geimnum sem
búa yfir langtum þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar
heimsóknir skilja eftir sig spor.
Fjöldi fólks hefur sagt frá samskiptum við aðkomnar verur.
Enn fleiri eru til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að
stíga fram og segja frá reynslu sinni.
En nú hefur hulunni verið svipt af sannleikanum og
frekari upplýsingar eru að koma í ljós. Vitnaleiðslur fyrir
Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur
rannsaka geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju
jafnframt frá almenningi.
Gunnar Dan fjallar hér með lifandi og grípandi hætti
um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta
mannkyns við ójarðneskar verur.
Ert þú með opinn huga?