Algjör Perla

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Algjör Perla er glæný bók úr smiðju Jónínu Leósdóttur, sem hefur skrifað á þriðja tug bóka – þar á meðal tvær geysivinsælar glæpasagnaseríur kenndar við Eddu og Sáló ehf. Alþekkt kímnigáfa Jónínu nýtur sín sérstaklega vel í þessari margslungnu og hlýlegu sögu sem kemur sífellt á óvart.

Þegar Perla rankar við sér á Landspítalanum eftir heilablóðfall snýst hennar fyrsta hugsun aðeins um eitt: Bévað líkið, sem getur alveg ómögulega verið áfram þar sem það er.

 

En hvað getur hálflömuð manneskja á áttræðisaldri tekið til bragðs í slíkri stöðu? Vitanlega getur hún ekki blandað nokkrum í svo viðkvæmt mál. En það má komast ansi langt á þrjóskunni og hugvitinu einu saman … og stundum fær kona í neyð liðsauka úr óvæntustu átt.

✨ Umsagnir

„…þessi kímni er bara meiri háttar. Ég var mjög ánægð með þessa bók … Þetta er bara stórkostlega fyndið.“ - Ingibjörg Iða Auðunsdóttir / Kiljan

„Þetta er léttleikandi og kómískt og svo er það Perla. Þessi persónusköpun er gríðarlega vel heppnuð.“ - Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Algjör Perla

Algjör Perla

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK