Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Nokkur orð um notagildi lífsins
6,990 ISK
Höfundur Sigmundur Ernir Rúnarsson
Áleitin ljóðabók eftir eitt af okkar helstu skáldum.
Dóttur mína,
dána
dreymir mig ekki veika,
aldrei örkumla,
hröra
en þannig er huganum
farið
í fastasvefninum
mildi hans
máir burtu
miskunnarleysið,
þjáninguna
þar til maður
vaknar.
„„Hún hefur allt til að bera sem góð ljóðabók á að hafa. Ljóðin eru hófstillt en meitluð. Þau kalla til lesandans í hógværð sinni. Miðla reynslu, lífssýn, tilfinningu og fegurð. Yndisleg bók.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
“Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Fréttablaðinu (um Skáldaleyfi)