Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Jarðtengd norðurljós

4,690 ISK

Höfundur Þórarinn Eldjárn

Jarðtengd norðurljós inniheldur óbirt ljóð af ýmsu tagi, óbundin, háttbundin og prósaljóð og yrkisefnin fjölbreytileg.

Á hjarni

 

Í bílljósunum

dansandi fjúk um veginn

jarðtengd norðurljós.

 

Næsta dag

stirnir á hjarni vetrarsól

stjörnur himins

hafa allar hrapað

og dreift sér

um víðan völl

blikandi

blikkandi

á hvítum grunni.

 

Ég dreg upp símann

en það næst ekki á mynd.

 

Hentar þeim mun betur

í ljóðmynd.