Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Kormákur dýravinur

1,490 ISK 999 ISK

Höfundur Jóna Valborg Árnadóttir og Elsa Nielsen

Kormák hefur lengi dreymt um að eignast gæludýr. En þar sem pabbi er með ofnæmi lítur ekki út fyrir að honum muni nokkru sinni verða að ósk sinni. Undur og stórmerki gerast og draumur Kormáks rætist. Þá kemur upp vandamál sem Kormákur þarf hjálp við að leysa.

Kormákur dýravinur er þriðja sagan sem hefur verið skrifuð um þennan skemmtilega strák.

Bækurnar um Kormák eftir Jónu Valborgu Árnadóttur og Elsu Nielsen eru nú orðnar þrjár talsins og nýjasta bókin í þessum bókaflokki fyrir yngstu lesendurna, Kormákur dýravinur, er komin út. Kormáksbækurnar spegla veruleika íslenskra leikskólabarna og Kormákur glímir við hinu ýmsu viðfangsefni, allt frá því að skilja hvers vegna má ekki vera í krummafót að því að finna leið til að eignast gæludýr þótt heimilismeðlimir kunni að vera með ofnæmi.

Bækurnar um Kormák eru ávöxtur gjöfuls samstarfs Jónu Valborgar Árnadóttur og Elsu Nielsen en þær hafa unnið saman að fjölda barnabóka í gegnum tíðina. Búast má við að íslenskar fjölskyldur njóti áfram góðs af samstarfi þessara góðu kvenna en Jóna Valborg er nýkomin heim úr gestadvöl í Åmål í boði AIR Litteratur í Svíþjóð. Mikið stendur einnig til hjá Elsu Nielsen en hún opnar einkasýningu í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn í byrjun maí.