Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Lesið í tarot

6,990 ISK 4,990 ISK

Höfundur Alison Davies

Gakktu inn í dularfullan og kynngimagnaðan heim tarot og uppgötvaðu töfrandi sögur á bak við spilin í bók sem á sér enga líka.


Hvert tarot-spil hefur sögu að segja og er þrungið táknrænni merkingu. Í þessari fallegu bók, sem hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum, glæðir sérfræðingurinn Alison Davies söguna að baki hverju spili lífi.


Fylgdu Fíflinu á ferðum sínum um Major Arcana þar sem það fetar sig áfram á lífsins vegi og hittir fyrir lykilpersónur á borð við Einsetumanninn, Dauðann og Æðstuprestynjuna. Lærðu sögurnar að baki sortanna fjögurra í Minor Arcana. Uppgötvaðu hvernig systur þrjár risu til valda í sort myntanna og hvernig hugmynd sem breytti heiminum fæddist í sort vandanna.


Sögurnar í bókinni og þemu hvers spils nýtast þér til að fræðast um leyndardóma tarot og dýpka skilning þinn svo að þú getir tileinkað þér spekina sem spilin búa yfir.

Hafsteinn Thorarensen þýddi.