Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Beinaslóð

4,290 ISK

Höfundur Johan Theorin

Maður nokkur leggur blómsveig á yfirgefna strönd á Ölandi. Stuttu síðar deyr hann við grunsamlegar aðstæður. Þegar lögregluforinginn Tilda lyftir upp blómsveignum koma í ljós jarðneskar leifar manns sem síðast sást á lífi með frænda Tildu, gamla skútuskipstjóranum Gerlof Davidsson.

Gerlof er heilsuveill og veikburða en telur sér skyldt að rannsaka hvers vegna gamall harmleikur getur enn vakið ótta og hatur. Morðið á ströndinni er aðeins upphafið, svo djúpt ristir hatrið.
Öland-sagnabálkur sænska verðlaunahöfundarins Johans Theorin hefur farið sigurför um heiminn og verið þýddur á fjölda tungumála. Beinaslóð er fimmta bókin í flokknum en áður eru út komnar bækurnar Hvarfið, Náttbál, Steinblóð og Haugbúi sem allar hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.