Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Hælið

4,990 ISK

Höfundur Emil Hjörvar Petersen

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Aftakan var aðeins upphafið.

Allt virðist leika í lyndi hjá verslunarstjóranum Uglu, eiginmanni hennar og unglingum þeirra tveimur. Þau eru nýflutt inn í glæsilega íbúð í námunda við gamla Kópavogshælið og lífið gengur sinn vanagang. Fjótlega fara þó afar undarleg atvik að eiga sér stað sem Uglu grunar að tengist óreglusömum nágranna fjölskyldunnar, listamanninum Hrafni Vuong.

Ástandið versnar, veruleikinn er annar en hann sýnist og þegar Ugla er á barmi taugaáfalls fær hún skilaboð frá konu sem vistuð var á Kópavogshæli áður en því var lokað. Fjölskyldan er í mikilli hættu.

Hælið er hrollvekjandi og listilega fléttuð skáldsaga sem hrífur lesandann með sér á óhugnanlegt flakk um bæði tíma og rúm, þar sem drepsóttir fortíðar og aftökur í voginum koma við sögu.