Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Klingsor

4,890 ISK

Höfundur Torgny Lindgren

Þegar ungmennið Klingsor horfir á glasið halla sér frá lóðlínunni gerir hann sér ljóst að allt er lifandi, líka dauðir hlutir. Þar með er ljóst að hann verður ekki bara listamaður heldur listamaður með köllun.
Þessi ótrúlega ævisaga listamanns er eitt dæmið enn úr smiðju Torgnys Lindgrens þar sem tekist er á við alvarlegar og flóknar spurningar með vopnum listarinnar. Og enn gefst kostur á sagnaheimi þar sem allt getur gerst og skammt er milli ærsla og harms.
Heimir Pálsson íslenskaði.