Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Maðurinn í skiltinu

4,590 ISK

Höfundur María José Ferrada

Þegar Ramón býðst að vakta risastórt auglýsingaskilti Coca-Cola-fyrirtækisins við þjóðveg í hverfinu grípur hann tækifærið og ákveður að setjast að í skiltinu í leit að merkingu hlutanna. Ákvörðun hans kemur illa við nágrannana, sem finnst hann ógna heiðri hverfisins, og fyrr en varir taka þeir málin í sínar hendur.

Skáldsaga byggð á sannsögulegum atburði eftir síleska rithöfundinn Maríu José Ferrada. Maðurinn í skiltinu er önnur skáldsaga hennar en sú fyrsta, Kramp, kom út hjá Angústúru árið 2023. Ferrada hefur í þrígang unnið til verðlauna síleska menningarmálaráðuneytisins.