Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Nákuldi

4,290 ISK

Höfundur Ann Cleeves

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Á dimmum vetrardögum á Hjaltlandi veldur úrhellisrigning geysimikilli aurskriðu.
Við greftrun gamls vinar verður Jimmy Perez vitni að því þegar leðjan og móríkt vatnið hrífa með sér gamalt smábýli. Í rústunum finnur Perez lík dökkhærðrar konu í rauðum silkikjól. Fljótlega kemur í ljós að hún hafði dáið áður en skriðan féll. En hver var hún og hvernig bar dauða hennar að?
Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar um lögregluforingjann Jimmy Perez, sem gerast á Hjaltlandseyjum (Shetland), hafa slegið í gegn. Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur gert vandaða sjónvarpsþætti eftir sögunum sem njóta mikilla vinsælda víða um heim.
Snjólaug Bragadóttir þýddi.