Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Örblíða

4,890 ISK

Höfundur Úlfar Þormóðsson

Í Örblíðu leiðir Úlfar Þormóðsson lesandann í undarlegt ferðalag, sprottið upp úr hugleiðingum af ýmsu tagi og leit að manni sem sífellt hverfur. Skyndilega er veruleika sögumanns raskað. Dregið er fram í dagsljósið áratugagamalt mál. Úlfar rifjar upp málavexti og afhjúpar ýmsar fullyrðingar sem varpað hefur verið fram.

Leit hans að upplýsingum í stjórnkerfinu tekur á sig kostulega mynd sem minnir á Kafka. Í miðjum klíðum verður hann fyrir þeim harmi að missa unnustu sína til þrjátíu ára – og þung sorgin verður förunautur hans.

Við áframhaldandi leit fýkur sannleikurinn út í veður og vind. Og sögumaðurinn öðlast frið í sálu sinni.

Einstök bók um völundarhús mannheima eftir einn merkilegasta höfund þjóðarinnar.

Úlfar Þormóðsson hefur sent frá á þriðja tug bóka af ýmsu tagi sem vakið hafa mikla athygli.