Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Systraklukkurnar

4,190 ISK

Höfundur Lars Mytting

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Í sjö hundruð ára gamalli stafkirkju í afskekktri sveit í Noregi hanga Systraklukkurnar og eru sagðar hringja þegar hætta steðjar að.

Árið 1879 kemur nýr prestur til þjónustu í sókninni og kveikir von í brjósti hinnar nítján ára gömlu Astridar sem dreymir um betra líf. Presturinn gerir Astrid að bandamanni sínum til að koma á nútímalegri siðum og losa sveitina við gömlu stafkirkjuna, klukkurnar og hjátrúna sem þeim fylgir. En þegar ungur arkitekt birtist alla leið frá Þýskalandi til að hrinda áformum prestsins í framkvæmd breytist allt. Astrid virðist hafa örlög sveitarinnar í höndum sér og þarf að velja á milli prestsins og heillandi framtíðar í öðru landi.

En þá hringja Systraklukkurnar 

Lars Mytting hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín en Systraklukkurnar fengu meðal annars bóksalaverðlaunin í heimalandi hans Noregi og sátu í efsta sæti metsölulistans þar. Útgáfurétturinn hefur verið seldur til fjölmargra landa og hefur bókin alls staðar hrifið lesendur. Skáldsaga hans Synt með þeim sem drukkna kom út á íslensku og hlaut afar góðar viðtökur.