Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Aðventa

3,900 ISK

Höfundur Gunnar Gunnarsson

Aðventa ljómar af þeim dimma og bjarta eldi sem kviknar af neistafluginu þegar veruleika og skáldskap er slengt saman, því að aðalpersónan Benedikt og leit hans að kindum uppi á öræfum í grimmasta mánuði íslensks vetrar eiga rætur sínar í veruleikanum. Engin bók Gunnars hefur farið jafn víða um lönd og Aðventa sem hefur verið þýdd á um 20 tungumál.
Sagan er einföld á yfirborðinu, ekki flókin þegar því sleppir, heldur djúp og frjósöm. Stíll Gunnars er hvergi jafn látlaus og blátt áfram fallegur eins og í Aðventu.