Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Ástin Texas

3,999 ISK

Höfundur Guðrún Eva Mínervudóttir

Í þessum tengdu sögum Guðrúnar Evu eru samskipti fólks á öllum aldri í forgrunni; mæðgna, feðgina, elskenda, vinnufélaga, hyskis og góðborgara. Persónugalleríið er fjölbreytt og litríkt; sálfræðineminn Hildigunnur, Agnar sjoppueigandi, Jósteinn múrari, trúboðarnir Austin og David frá Texas, Jóhanna sem dregst háskalega að Kára, móðurbróður bestu vinkonu sinnar, elskendurnir Sóti og Magga sem verja tíma sínum á knæpunni Dallas …

Af einstöku næmi og stílgáfu nær Guðrún Eva hér fágætri dýpt í mannlýsingum og bæði persónur og andrúmsloft sagnanna lifa með lesanda lengi á eftir. Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2011 fyrir Allt með kossi vekur og síðasta bók hennar, Skegg Raspútíns, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2016, og vakti mikla athygli. Guðrún Eva hlaut Fjöruverðlaunin árið 2019 fyrir Ástin, Texas en bókin fékk einróma lof þegar hún kom út haustið 2018.