Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Sjón - heildarsafn

15,990 ISK

Höfundur Sjón

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Í heildarsafni ritverka Sjóns eru allar skáldsögur hans og ljóð frá 1978 til 2022. Á þessu tímabili hefur hann sent frá sér þrettán ljóðabækur og tíu skáldsögur sem hér er safnað saman í níu bækur. Í hverri bók er eftirmáli eftir fræðimann eða rithöfund; greiningar, skýringar og túlkanir.

Sjón er fæddur 1962 og hóf höfundarferil sinn snemma. Verk hans eru fjölbreytt; auk sagna og ljóða hefur hann meðal annars samið leikrit, söngtexta og kvikmyndahandrit. Með einstöku hugmyndaflugi sínu, víðtækri þekkingu og magnaðri stílgáfu hefur hann auðgað íslenskar bókmenntir og vakið mikla athygli á erlendum vettvangi. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir skáldskap, þar á meðal Bókmenntaverðlaun Norurlandaráðs og Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Bækurnar í safninu eru: Stálnótt (1987), Engill, pípuhattur og jarðarber (1989), Skugga-Baldur (2003), Argóarflísin (2005), Rökkurbýsnir (2008), Mánasteinn(2013), CoDex 1962 (2016; inniheldur sögurnar Augu þín sáu mig frá 1994, Með titrandi tár frá 2001 og Ég er sofandi hurð frá 2016), Korngult hár, grá augu (2019) og loks Ljóðasafn 1978-2022.