Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Einlægur önd

3,990 ISK

Höfundur Eiríkur Örn Norðdahl

Í skáldsögunni Einlægur Önd leikur Eiríkur Örn Norðdahl sér á mörkum skáldskapar og veruleika í umfjöllun um útskúfun, refsingu og fyrirgefningu. Launfyndin skáldsaga um rithöfundinn Eirík Örn, sem hefur brennt allar brýr að baki sér, og sögu hans um Felix Ibaka frá Arbítreu, þar sem fólk refsar hvert öðru með múrsteinaburði. Eiríkur Örn Norðdal hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir bækur sínar, hér heima og erlendis, sem jafnan eru nýstárlegar og ögrandi.