Frelsisbjarmar

Valur Gunnarsson

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK

Tvö hundruð og fimmtíu ár eru liðin frá stofnun Bandaríkjanna og tuttugu og fimm ár frá þeim atburði sem mótað hefur nútímann svo mjög, árásirnar 11. september 2001. Valur Gunnarsson drekkti sér í amerískri dægurmenningu sem unglingur og sneri sér svo að sagnfræðinni. Hér fjallar hann um áhrif Bandaríkjanna, herstöðina á Íslandi, uppruna og afleiðingar 11. september, efnahagshrunið sem öllu breytti og sundrung þjóðarinnar. Bandaríkin voru á hátindi valda sinna í upphafi aldar en síðan þá hefur dregið úr mætti þeirra og heimsmyndin riðlast ört. Til að kanna hvernig við komumst hingað og hvað gerist næst þarf að skoða öldina okkar en jafnframt seilast aftur til upphafsins til að skilja þetta þjóðfélag sem framar öðrum var byggt á hugmyndum og draumum.

Að hætti hússins fléttar höfundur eigin ferðalög og persónulegar upplifanir inn í frásögnina. Æskuhetjan Bruce Springsteen kemur nokkuð við sögu sem og Leonard Cohen-hátíð í Minnesota, og jafnvel Rocky er sóttur heim í þessu landi sem ávallt virðist geyma bæði það besta og það versta.

Valur Gunnarsson lærði sagnfræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Helsinki, Humboldt-háskóla í Berlín og Kúras-stofnunina í Kænugarði jafnt sem ritlist í Belfast og Norwich. Hann hefur sent frá sér fjölda bóka, þar á meðal Grænland og fólkið sem hvarf sem fjallar um ráðgátuna um norræna fólkið á Grænlandi, Berlínarbjarma þar sem hann kryfur sögu hinnar margslungnu borgar frá ýmsum hliðum og Bjarmalönd sem greinir frá arfleifð Sovétríkjanna í Austur-Evrópu. Tvær bóka hans hafa komið ú

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Frelsisbjarmar

Frelsisbjarmar

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK