Rætur birtir nýjar hliðar á forseta sem flestir telja sig þekkja vel. Meitluð mynd, sannfærandi, hreinskilin og opinská. Í Sögum handa Kára fjallaði Ólafur Ragnar um frægðarfólk í framandi löndum. Hér leitar hann upprunans og svara við fjölmörgum spurningum: Hvað markaði brautir lífsins? Hverjir mótuðu strákinn að vestan? Hvar er innri mann að finna? Óvænt bók sem lengi verður lesin.