Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt
Þagnarbindindi
2,990 ISK
Höfundur Halla Þórlaug Óskarsdóttir
Þessi vara er ekki fáanleg eins og er
Ljóðsagan Þagnarbindindi miðlar hugarheimi konu sem reynir að ná tökum á minningum um missi og ótta, um samskipti við konurnar sem hafa verið henni nánastar og henda reiður á svo mörgu sem hún hefur aldrei sagt.
Á yfirborðinu hafa ljóðin lágstemmt yfirbragð hversdagsraunsæis en markvisst myndmál og athuganir undirstrika sársaukann í þögninni og tilfinningalega dýpt undir kyrrlátu yfirborðinu. – Umsögn bókmenntaráðgjafa Miðstöðvar íslenskra bókmennta, en verkið hlaut Nýræktarstyrk.