Þegar heimurinn fórst

Stefán Máni

5,490 ISK
5,490 ISK 0 ISK

Hún er að leita að Guði

Hann er djöfull í mannsmynd

Örlögin leiddu þau Míu og Tomma saman aðeins fáeinum klukkustundum áður en heimurinn fórst.

Þau eru jafnólík og dagur og nótt.

En þar sem það lítur út fyrir að þau séu einu eftirlifendur mannkyns verða þau að standa saman, hvort sem þeim ­líkar það betur eða verr.

Þau koma sér fyrir í stórri verslun í úthverfi stórborgar.

Í hönd fara dagar og vikur sem snúast um það eitt að lifa af í gjörbreyttum og hættulegum heimi.

Á meðan Tommi fer í langa leiðangra um draugslegar eyði­lendur hinnar nýju heimsmyndar sankar Mía að sér fræðibókum og fer í ferðalag inn á við, í leit að svörum við þeim spurningum sem sækja á huga hennar.

Hver er tilgangur lífsins?
Er líf eftir dauðann?
Er Guð til?
Ef hann er til, hvar er hann?
Og hvað er hann?

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Þegar heimurinn fórst

Þegar heimurinn fórst

5,490 ISK
5,490 ISK 0 ISK