Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Ferðin á heimsenda 2: Týnda barnið

4,690 ISK

Höfundur Sigrún Elíasdóttir

Húgó og Alex eru ekki búin að gefast upp á því að finna vorið þótt stundum gangi allt á afturfótunum. Nú eru þau komin á nýjar slóðir þar sem þau kynnast meðal annars gömlum karli með unglingaveiki, risaskordýrum og dularfullri konu sem býr yfir leyndarmáli úr fortíð Húgós.

Týnda barnið er feikilega fjörug og spennandi saga ætluð átta til tólf ára lesendum. Þetta er önnur bókin af þremur um hættuför félaganna til bjargar heimabyggð sinni.

Sigrún Elíasdóttir býr í Borgarfirði. Þar hefur hún sér til aðstoðar tvo mennska skrímslaráðgjafa sem segja henni líka hvenær hún er ekki nógu fyndin. Sigmundur Breiðfjörð er þriðji skrímslasérfræðingurinn og blæs lífi í allar furðuverurnar með blýöntum sínum og pennum.