Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Kökugleði Evu væntanleg í október

Kökugleði Evu væntanleg í október

Sjónvarpskokkurinn geðþekki, Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, gefur út sína aðra matreiðslubók hjá Sölku í vetur. Í henni má finna yfir 80 uppskriftir að gúmmelaði og meðal kafla eru bollakökur, súkkulaðikökur, tilefniskökur og "a piece of pie". Þessi fallega bók kemur ekki til með að svíkja sælkera og gefur frábærar hugmyndir hvort sem er fyrir sunnudagskaffið, barnaafmælið eða brúðkaupið! Bókina prýða ljósmyndir eftir Karl Petersson.

Kökugleði Evu kemur út í október en áhugasamir geta nælt sér í eintak í forsölu, og fengið bókina í hendur fyrstir allra, hér: https://www.salka.is/products/kokugledi-evu
20. september 2016 eftir Anna Lea Friðriksdóttir