Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

1984

4,490 ISK

Höfundur George Orwell

Eitt af meistaraverkum 20. aldar bókmennta
Í þessari áhrifaríku bók bregður George Orwell upp ógnvænlegri mynd af alræðisríki þar sem „Stóri bróðir“ hefur nær algera stjórn á lífi fólks, hugsunum þess og minni. Í ömurlegri og þrúgandi tilveru fremur Winston Smith þá dauðasynd að reyna að skapa sér sjálfstæða vitund. Honum tekst um skeið að halda dagbók og njóta forboðinnar ástar. En „Hugsanalögreglan“ og „Stóri bróðir“ eru alltumlykjandi. Hrollvekjandi framtíðarsaga sem á ekki síður erindi nú en þegar hún var rituð fyrir nær sjötíu árum.
Þórdís Bachmann íslenskaði.