Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Fjallvegahlaup

4,990 ISK

Höfundur Stefán Gíslason

Fjallvegahlaup hefur að geyma lifandi leiðarlýsingar 50 fjallvega víðs vegar um landið auk veglegs undirbúningskafla og fjölda góðra ráða. Leiðirnar er hægt að hlaupa eða ganga, allt eftir getu hvers og eins og eru af ýmsum toga. Það sem leiðirnar eiga sameiginlegt er að þær eru allar 9 kílómetrar eða lengri, ná að minnsta kosti 160 metra hæð yfir sjó og tengja saman tvö byggðarlög eða áhugaverða staði. Leiðirnar geta verið fornar göngu- eða reiðleiðir eða fáfarnir bílvegir (F-vegir). Hverri leið fylgir ítarleg leiðarlýsing, kort og GPS-hnit, aragrúi ljósmynda og upplýsingar um staðarhætti og aðstæður. Þar að auki má finna mikinn sögulegan og landfræðilegan fróðleik um þær leiðir sem hlaupið eða gengið er hverju sinni.

Stefán Gíslason er umhverfisfræðingur sem ákvað á fimmtugsafmæli sínu að hlaupa 50 fjallvegi fyrir sextugt. Markmiðið með verkefninu var meðal annars að halda sér í formi á sextugsaldrinum, kynnast landinu sínu betur og vekja áhuga annarra á útivist og hreyfingu. Stefáni tókst ætlunarverk sitt, hljóp 50 leiðir, ýmist einn síns liðs eða í góðra vina hópi, og afraksturinn má finna hér.

Fjallvegahlaup er bók fyrir allar fjallageitur, hlaupara, náttúruunnendur og þá sem leita að nýjum áskorunum.

Útgáfuár: 2017

Gerð: Kilja með innábroti

Síðufjöldi: 336

 

Viðtal við Stefán í Fréttablaðinu má lesa hér 

Viðtal við Stefán í Fréttatímanum má lesa hér