Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Settu saman allan heiminn

3,990 ISK

Höfundur Leon Gray

Kannaðu heiminn með þessari skemmtilegu bók sem fylgir hnöttur með!

Hér er á ferðinni einstakur leiðarvísir að öllum heiminum. Settu saman hnöttinn á auðveldan máta og lærðu allt um plánetuna okkar með handbók landkönnuðarins. Snúðu hnettinum, leitaðu að táknunum, finndu svörin við spurningunum og uppgötvaðu heilan heim af fróðleik!

Hnötturinn er 46 cm á hæð og bókin svarar ótal spurningum á borð við:

Hvar getur þú ferðast í tuk-tuk?

Af hverju er starf snákamjólkara mikilvægt?

Hvaða risaborg er næstum 700 ára gömul?

 

Útgáfuár: 2018

Gerð: Askja með bók og hnetti

Síðufjöldi bókar: 48