Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Eldgos

4,490 ISK

Höfundur Rán Flygenring

Þegar lúsafaraldur brýst út í skólanum hans Kaktuss bregður leiðsögumaðurinn mamma hans á það ráð að taka hann með sér í vinnuna. Kaktusi þykir íslensk náttúra ekki jafn svakalega spennandi og hinum rútufarþegunum en hann skiptir snögglega um skoðun þegar hann rekur augun í eitthvað rauðglóandi í fjarska …

 

Rán Flygenring verðlaunateiknari og rithöfundur er með eldgos á heilanum. Eftir að hafa lagt leið sína hátt í tuttugu sinnum að eldsumbrotunum á Reykjanesi hefur hún nú fundið öllum þeim glumrugangi og glundroða sem hún varð þar vitni að farveg í þessari æsispennandi og stór­ hættulegu sögu.