Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Akam, ég og Annika - stytt útgáfa

4,790 ISK

Höfundur Þórunn Rakel Gylfadóttir

Stytt útgáfa af bókinni Akam, ég og Annika sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2021 í flokki barna- og ungmennabóka. Einfalt málfar og orðskýringar til að koma til móts við fjölbreyttan lesendahóp. Óvænt og spennandi unglingabók eftir nýjan höfund.

Hrafnhildur er ósátt við að flytja til Þýskalands með fjölskyldu sinni þegar stjúpfaðir hennar fær þar vinnu. Nýi skólinn er mjög strangur og hún saknar pabba síns og ömmu, en aðallega bestu vinkonu sinnar. Það er erfitt að vera nýja stelpan í skólanum, mállaus og vinalaus, en fjótlega kemst hún að því að lífið er enn erfiðara hjá öðrum. Hrafnhildur þarf að takast á við áskoranir sem hún hefði aldrei trúað að væru til og reyna verulega á hugrekki hennar. Hverjum getur hún eiginlega treyst? Af hverju vill Annika endilega vera vinkona hennar? Og í hvaða vandræðum er Akam?

Hér birtist sagan Akam, ég og Annika í auðlesinni útgáfu. Textinn hefur verið styttur um 40%, málfar einfaldað og valin orð og efnisatriði eru skýrð út neðanmáls. Auk þess hefur letrið verið stækkað og línubil aukið. Tryggð er haldið við upprunalegu söguna í öllum meginatriðum. Markmið útgáfunnar er að koma til móts við þarfir fjölbreytts lesendahóps og auðvelda lestur sögunnar.

Þórunn Rakel Gylfadóttir og Rakel Edda Guðmundsdóttir unnu saman að þessari nýju útgáfu.