Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Lóa og Börkur - Langskot í lífsháska

3,690 ISK

Höfundur Kjartan Atli Kjartansson og Bragi Páll Sigurðsson

Sjálfstæð og æsispennandi bók í seríunni vinsælu um vinina Lóu og Börk. Nú fara þau til Bandaríkjanna í körfuboltabúðir en fyrr en varir fer af stað mögnuð atburðarás. Það er erfitt að fóta sig í hættulegum heimi þar sem fólk leynir á sér og ýmislegt getur gerst. Bók hlaðin rafmagnaðri spennu. Þvílík troðsla frá Kjartani Atla og Braga Páli!

Lóa og Börkur fá spennandi boð í körfuboltabúðir í Bandaríkjunum og ekki líður á löngu þar til mögnuð atburðarás fer af stað þar sem þau þurfa, ásamt félögum sínum, að takast á við risastórar áskoranir. Hætturnar finnast víða í hinum stóra heimi, fólk er ekki allt þar sem það er séð og ýmislegt getur gerst. Vinirnir þurfa að vinna saman og vera útsjónarsöm og hugrökk, því lífið sjálft er jafnvel undir. Við sögu koma lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og á Íslandi auk magnaðs mótorhjólagengis og annarra vafasamra einstaklinga.

Kjartan Atli Kjartansson er höfundur bókanna um þau Lóu og Börk en hann hefur einnig skrifað bækur um körfubolta sem gefnar hafa verið út á Íslandi og í Bandaríkjunum. Kjartan fær hér til liðs við sig höfundinn vinsæla Braga Pál Sigurðarson, sem slegið hefur í gegn með skáldsögum sínum og pistlum. Þó að Kjartan og Bragi komi úr ólíkum áttum eiga þeir það sameiginlegt að elska körfubo