Lára er lífsglöð og hefur sérstaklega gaman af að læra eitthvað nýtt. Bangsinn Ljónsi fylgir henni hvert fótmál og saman spreyta þau sig á ýmsum verkefnum.

Lára dettur af hjólinu sínu á leiðinni heim af fótboltaæfingu. Hún getur ekki hreyft fótinn og Ljónsi meiðir sig líka. Mamma segir að hún þurfi að fara til læknis og Lára kvíðir því dálítið.

Hvað skyldi læknirinn þurfa að gera?